SÁLF3LÍ05 - Lífeðlissálfræði

Undanfari : SÁLF2AA05
Í boði : Haust
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem vilja læra um mikilvæga áhrifaþætti þroska barna og ungmenna og hversu ólíkur skilningur barna á umheiminum er frá fullorðnu fólki. Tilgangurinn er að nemendur fái innsýn í megineinkenni þroska vitsmuna, tilfinninga, persónuleika, líkamans og málfærni.

 

Bókalisti / námsgögn:

Almenn sálfræði – Hugur, heili, hátterni (2003) eftir Aldísi U. Guðmundsdóttur og Jörgen L. Pind

Ítarefni sem má finna á heimasvæði áfangans

 

Námsmat:

Hlutapróf (5x) = 3% hvert

Skilaverkefni (5x) = 2% hvert

Heimildaverkefni = 15%

Lokapróf = 60%

 

Kennari: Lárus Jón Thorarensen

ATH: Námsmat á önninni gildir aðeins ef nemandi nær að lágmarki 4,5 á lokaprófi. Ekki er tryggt að nemandi nái áfanganum þó hann nái 4,5 á lokaprófi því námsmat á önninni gildir á móti.