SÓTT2SÓ04 - Sótthreinsun 1

Undanfari : Bóklegt nám tanntækna
Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Lýsing: Fjallað er um mismunandi aðferðir sem hægt er að nota við sótthreinsun og mun á hreinu, sótthreinsuðu og dauðhreinsuðu. Vinnureglur skilgreindar og unnið eftir þeim með áherslu á að stöðva smitleiðir. Fjallað er um mun á kemískri-, varma- og hita sótthreinsun. Áhersla er lögð á almenn skilyrði, reglur, skilgreiningar og próf er varða eftirlit með sótthreinsun. Gerð er grein fyrir kröfum, leiðbeiningum og alþjóðlegum stöðlum. Sérstök áhersla er lögð á smitgát og forvarnir gegn sýkingum með áherslu á aðstæður á tannlæknastofum. Farið er yfir leiðir sem auka sýkingavarnir og unnið af fagmennsku eftir þeim. Verkleg þjálfun á sótthreinsi stofu.

Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU

Námsmat: Símat á frammistöðu á klinik 20%, sótthreinsun og verkefni 20% lokapróf 60%.

Einingar: 4