SÓTT3DA04 - Sótthreinsun 2

Undanfari : SÓTT2SÓ04
Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Lýsing: Í áfanganum er fjallað um dauðhreinsun og sótthreinsun ásamt muninum á hugtökunum hreint, sótthreinsað og dauðhreinsað. Nemendur kynnast helstu aðferðum við sótthreinsun, svo sem kemískri sótthreinsun og hita- og varmasótthreinsun. Áhersla er lögð á dauðhreinsun og vinnureglur sem miða að því að rjúfa smitleiðir og tryggja öryggi í starfi. Einnig er fjallað um reglur, kröfur og alþjóðlega staðla sem tengjast sýkingavörnum í heilbrigðisþjónustu. Sérstök áhersla er lögð á smitgát í starfsemi tannlæknastofa auk leiða til að rekja smit. Nemendur fá verklega þjálfun í sótthreinsun og meðferð tækja og vinnusvæða.

Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU

Námsmat: Símat á frammistöðu á klinik 20%, sótthreinsun og verkefni 30% lokapróf 50%

Einingar: 4