- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Í áfanganum er fjallað um mjúka tannsýklu, hvernig hún er lituð og fjarlægð. Mjög ítarlega er farið yfir mikilvægi þess að nota fingrastuðning. Kennd er notkun hjálpartækja til að halda munni opnum og áhersla lögð á góða yfirsýn. Farið er yfir hvernig beita skal róterandi verkfærum í munni, öryggisatriði og þjálfun eru stór þáttur í umfjöllun áfangans. Einnig er fjallað um efni sem notuð eru við hreinsun mjúkrar tannsýklu og litun ásamt því hvernig gott er að leiðbeina þjónustuþegum við góða munnhirðu. Áhersla er lögð á nákvæmni við skráningu á tannkort. Þjálfað er í mátttöku.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Nemendur vinna með hvor öðrum þ.e. pússa tennur hvors annars. Skila þarf að minnsta kosti einu tilfelli að full pússuðum, skráðum og flúorlökkuðum munni kollega fyrir jól ásamt mjög ítarlegri dagbók fyrir pússun á önninni. Auk PBL verkefnis og máti af neðri góm sem búið er að steypa í.
Einingar: 4