THIR3FR04 - Tannhirða/pússun 2

Undanfari : THIR2GR04
Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Lýsing: Í áfanganum er fjallað um mismunandi nálgun að einstaklingum við að lita og fjarlægja mjúka tannsýklu. Æfingar í að nota fingrastuðning og öðlast færni í að koma verkfærum og tækjum að öllum flötum tanna. Æfð er notkun hjálpartækja til að halda munni opnum og að hafa góða yfirsýn. Þjálfað er í að skrá tannsýklu skipulega á tannkort og notast við mismunandi pússi efni og tæki. Einnig er unnið með mismunandi vandamál og tillögur að lausnum (PBL) í verkefnum. Auk þess að hæfni við fræðslu um munnhirðu er þjálfuð við stól.

Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU

Námsmat: Nemendur vinna með hvor öðrum þ.e. pússa tennur hvors annars en bjóða einnig öðrum jafningjum frá FÁ (nuddnemum), sérdeildarnemendum, vinum og vandamönnum. Nemendur þurfa að lita, skrá, pússa og fræða að minnsta kosti 4 utan að komandi einstaklinga á önninni og skila ítarlegri umfjöllun um það 40%. Auk þess er lokapróf sem gildir 60% þar sem farið er í gegnum ferlið með prófdómara við hlið (Pússupróf).

Einingar: 4