VÖFR2FH03 - Vöðvafræði 1 - áfanginn breytist í tvo áfanga - VÖFR2FH03 (fyrri hluti) og VÖFR2SH05 (seinnihluti) - það má taka þá samhliða

Undanfari : LÍOL2SS05, eða tekinn samhliða
Í boði : Haust, Vor
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Lýsing: Efni fyrri áfanga vöðvafræði er starfsemi og uppbyggingu vöðva, hvernig þeir starfa í pörum og tengingu við miðtaugakerfið. Einnig verður lögð mikil áhersla á að læra öll áttunarhugtök og hreyfingar mismunandi liða, auk liðgerða.

Farið verður í öll bein og vöðva í köflum 2, 3 og 4 í Trail Guide to the body, sem eru axlarvöðvar, handleggur, hendi og vöðvar í búk.

Bókalisti: Trail Guide to the body eftir Andrew Biel. Fæst í Bóksölu stúdenta.

Námsmat: Lokapróf með lágmarkseinkunn 5

Hlutapróf gilda helming einkunnar en gilda ekki nema lágmarkseinkunn sé náð.

Einingar: 3