Ítölsk ævintýri

Alice enskukennari fór með 5 nemendur í skólaheimsókn til Ítalíu 2. - 8. mars. Þetta voru þau Ásthildur, Chandy Rós, Roksana Julia, Snorri Karl og Vladyslav. Þar heimsóttu þau skólann Liceo delle Scienze Umane „Vittorino da Feltre“ í Bari.

Ferðalagið var sannkallað ævintýri.  Nemendurnir dvöldu hjá ítölskum fjölskyldum, sem gaf þeim einstakt tækifæri til að kynnast daglegu lífi og menningu á staðnum. Í skólanum tóku þau þátt í fjölbreyttum verkefnum í ensku, sögu og ítölsku, þar sem samvinna og samskipti við ítalska nemendur voru í fyrirrúmi.

Auk skólastarfsins fengu nemendurnir að kanna Taranto og nágrenni með leiðsögn heimamanna. Þar fræddust þau um sögu svæðisins og menningu á lifandi og skemmtilegan hátt.

Ferðin var ekki aðeins lærdómsrík heldur líka ævintýri sem gaf nemendunum dýrmæta innsýn í nýtt skólaumhverfi og allt aðra menningu, upplifun sem þau munu án efa muna lengi.