- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Bergdís, nemandi við Fjölbrautaskólann við Ármúla, sneri heim frá Þýskalandi um helgina með bronsverðlaun í farteskinu! Hún tók þátt í dansmóti Special Olympics ásamt glæsilegum hópi frá Dans án hindrana á vegum Danslistaskóla JSB og stóð hópurinn sig frábærlega.
Danshópurinn sem æfir jazzballett hafa æft saman undanfarin þrjú ár og lagt mikinn metnað og vinnu í undirbúninginn fyrir keppnina. Sá undirbúningur skilaði sér svo sannarlega með glæsilegum árangri!
Við í FÁ erum afar stolt af Bergdísi og óskum henni og öllum danshópnum innilega til hamingju með bronsið! 👏🥉