BGreen kvikmyndahátíð í Portúgal

Hópur nemenda frá FÁ skellti sér til Portúgal á dögunum til að taka þátt í kvikmyndahátíðinni BGreen Festival sem var haldin í Santo Tirso, skammt frá Porto dagana 3.-7. júní. Atli Sigurjónsson kvikmyndakennari og Þórhallur Halldórsson líffræðikennari fylgdu þeim Arngrími Búra, Helenu Freyju, Heorhii, Steini og Önu á hátíðina.

BGreen er hátíð fyrir ungt fólk sem leggur áherslu á umhverfismálefni og felst í því að nemendur gera stutta spotta (30-45 sek) út frá ákveðnu þema sem hátíðin leggur fram – í þetta skiptið var þemað „Smart solutions, green future“. Hundruðir skóla um allan heim sentu inn myndir og rúmlega tuttugu voru valdar, þar á meðal mynd frá okkar nemum.

Hátíðin stóð yfir í 4 daga og á þessum dögum fór m.a. fram vinnusmiðja, leikir, skoðunarferðir um bæði Porto og Santo Tirso og svo fengu þátttakendur það verkefni að hreinsa strönd og í leiðinni læra um hvaða rusl er helst að finna í sjónum. Síðan endaði þetta allt með glæsilegu galakvöldi þar sem allar myndirnar voru sýndar og verðlaun í ýmsum flokkum voru veitt. Því miður bar okkar mynd ekki sigur úr býtum en takmarkið er að sækja aftur um að ári, gera enn betri mynd og sigra keppnina.

Nemendur okkar nutu sín mjög vel í ferðinni og mun hún seint gleymast – vináttubönd voru bæði smíðuð og strengd, synt var í sjónum, „local“ matur smakkaður og hugsað vel um umhverfið.

Hér er hægt að kynna sér hátíðina betur https://bgreenfestival.com/en/