Erasmus verkefni – sérnámsbraut FÁ og Ängelholm gymnasiet í Svíþjóð

Fjórir starfsmenn sérnámsbrautar tóku þátt í „job shadowing“ verkefni með tveimur kennurum í Ängelholm á Skáni í Svíþjóð á þessari önn. Þetta voru Dóra, Finnbjörn, Hlynur og Inga Maggý á sérnámsbraut. Frá Ängelholm voru það Louise og Ulrika sem komu í heimsókn til okkar 7.-9.apríl. Þær fylgdust með kennslu í öllum okkar námshópum auk þess sem þær sýndu nemendum okkar myndband sem var kveðja frá nemendum í Ängelholm.

Skólinn þeirra Louise og Ulriku í Ängelholm heitir Rönnegymnasiet og er hann starfsnámsskóli þar sem nemendur velja sér brautir eftir áhugamálum. Skólinn er fjögurra ára nám við að undirbúa sig fyrir framtíðarstörf. Brautirnar sem hægt er að velja um á sérnámsbraut í Ängelholm eru:

- Í verslunar og þjónustugeiranum,

- Í hótel, veitingastaða og bakaríis geiranum,

- Í heilsa og umönnun,

- Í Einstaklingur, Samfélag/Náttúra/Tungumál

Louise og Ulrika kenna nemendum á braut „verslunar og þjónustu“. Nemendur á þeirri braut hafa meðal annars búið til „fyrirtæki“ þar sem þau hafa búið til taupoka, þrykkt á það mynd og selt til fjáröflunar.

Munurinn á sérnámsbraut FÁ og Rönnegymnasiet er að við erum sérnámsskóli en Rönndgymnasiet er starfsnámsskóli. Að öðru leiti er markmiðið það sama á báðum brautum þ.e. að að bæta við námgetu hvers nemanda með það að markmiði að gera þau eins virka þjóðfélagsþegna og hægt er.

Heimsókn okkar til Svíþjóðar var dagana 12-16.maí. Við heimsóttum tvo skóla í Ängelholm sem þó eru undir sömu stjórn. Þetta voru tveir mjög ólíkir skólar. Rönnegymnasiet er starfsnámsskóli fyrir námsgetumeiri nemendur en Viktoriaskolan er skóli fyrir fjölfatlaða nemendur þar sem áherslan er einstaklingsmiðað nám þar sem námið er aðlagað og byggt ofan á getu hvers og eins nemanda. Nemendur í Viktoriaskolan eru svipaðir nemendum í S stofum niðri hjá okkur. Við hittum íslenska kennara í báðum skólum, annars vegar íþróttakennara og svo sérkennarar, báðar voru þær alsælar með vinnuna í skólunum.

Við fylgdumst með kennslu á öllum brautum skólanna og sáum að starfsumhverfi nemenda og kennara voru ívið betra heldur en við eigum að venjast hvað rými varðar. Við vorum mjög ánægð með þessa heimsókn og höfðum orð á því að af mörgum skólaheimsóknum sem við höfum farið í víða um lönd var þetta í fyrsta sinn sem við sáum svipað starf og er hjá okkur á báðum stöðum auk þess sem við fengum fullt af góðum hugmyndum. Við fylgdumst með í tímum á öllum brautum auk þess sem við fórum í með kennurunum í verkefninu á útivistarsvæði nálægt Ängelholm. Þetta var góð og gagnleg ferð og mikil löngun til að halda áfram með svipað verkefni milli skólanna þannig að aðrir starfsmenn geti tekið þátt.

Ängelholm er virkilega fallegur 20 þúsund manna bær, rólegur og veðrið mjög gott.