FÁ á Vörumessu

Vörumessa á vegum JA Iceland var haldin í Smáralindinni um síðustu helgi, 17. og 18. apríl síðastliðinn. Þar tóku nemendur í framhaldsskólum landsins þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla sem er nýsköpunarkeppni framhaldsskólanna.

Nemendur í áfanganum Nýsköpun – frá hugmynd til markaðssetningar í FÁ, undir leiðsögn kennarans Róberts Örvars Ferdinandssonar tóku þátt í sýningunni og kynntu þar fjölbreyttar og áhugaverðar vörur sem vöktu athygli og áhuga gesta í Smáralindinni.

Nýsköpunarfyrirtæki nemendanna voru bæði fjölbreytt og skapandi:

Hrein Fegurð - Uppskriftabók fyrir snyrtivörur sem búnar eru til úr hreinum náttúrulegum efnum sem fólk getur sjálft búið til.

Sjávarkraftur - Íslenskt fyrirtæki sem framleiðir fæðubótarefni úr fiskiroði.

Triæra - Menningarlegir skartgripir sem tengja saman menningu Ísland, Venesúela og Víetnam.

 

 

Sjávarkraftur

Hrein fegurð

Triæra