- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Fimm nemendur FÁ dvöldu í Lannion í Frakklandi dagana 30. september–6. október ásamt kennurunum Ásdísi og Þórhalli. Ferðin var hluti af Erasmus+ samstarfsverkefninu „Truth on Trial: Fake News, Media and the Rise of AI“, þar sem sjónum er beint að falsfréttum, fjölmiðlalæsi, samfélagsmiðlum og áhrifum gervigreindar á miðlun upplýsinga.
Nemendurnir sem tóku þátt voru Elísabet Steingrímsdóttir, Snædís Erla Halldórsdóttir, Oliwia Alicja Losz, Sveinn Pálsson og Kolbrún Ólafía Harðardóttir.
Fyrsta daginn fengu nemendur að kynnast frönsku skólalífi og tóku þátt í hefðbundnum kennsludegi með gestgjöfum sínum. Það vakti meðal annars athygli þeirra hversu mikil ró ríkti í kennslustundunum. Eftir skóladaginn gafst síðan tími til að kynnast umhverfinu og frönsku mannlífi, meðal annars með strandferðum og að sjálfsögðu frönskum crêpes.
Á fyrsta eiginlega verkefnisdeginum hófst vinnan við viðfangsefni ferðarinnar. Nemendur fóru niður í miðbæ Lannion og lögðu spurningar fyrir fólk á förnum vegi um fjölmiðlanotkun þess. Í dagskránni var einnig heimsókn í háskólann IUT Journalisme, fjölmiðla- og blaðamannanám í Lannion, þar sem hópurinn fékk innsýn í nám og störf á sviði fjölmiðla.
Ferðin tók þó óvænta stefnu þar sem umfangsmikil mótmæli franskra framhaldsskólanema settu mark sitt á dagskrána. Hópurinn varð vitni að mótmælum við skólann og þurfti meðal annars að breyta fyrirhugaðri dagsferð til borgarinnar Rennes og heimsókn í eitt stærsta dagblað Frakklands vegna kröftugra mótmæla í borginni. Í staðinn var ákveðið að nýta daginn til að skoða nágrennið og varð úr hin besta strandferð og óviðjafnanlegt bleika granít Bretagne svæðisins skoðað.
Þegar ró færðist yfir hélt verkefnavinnan áfram. Nemendur unnu saman að verkefnum tengdum falsfréttum, fjölmiðlum og því hvernig við nálgumst upplýsingar. Í verkefninu var meðal annars fjallað um muninn á gæðablaðamennsku og samfélagsmiðlum, áhrif samfélagsmiðla, framtíð blaðamennsku og starf blaðamannsins. Afrakstur verkefnisins var hugsaður sem greinar í sameiginlegt tímarit.
Auk verkefnavinnunnar gafst nemendum góður tími til að kynnast frönskum jafnöldrum sínum, gestgjafafjölskyldum og menningu svæðisins. Þrátt fyrir óvæntar breytingar á dagskrá og nokkuð ævintýralegar aðstæður stóðu FÁ-nemarnir sig með mikilli prýði og tóku öllu sem að höndum bar af jákvæðni.
Heimferðin varð svo lokakaflinn í ævintýrinu, með seinkun á lest og komu til Montparnasse rétt fyrir miðnætti. Þar náði hópurinn þó síðustu kvöldmáltíðinni í Frakklandi áður en langt ferðalag heim hófst – þreyttur, en reynslunni ríkari eftir viðburðaríka daga í Lannion.
Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu skólans.