- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Nemendur í viðskiptalögfræði heimsóttu Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem þeir fylgdust með aðalmeðferð í máli sem varðaði umferðarlagabrot.
Heimsóknin var liður í að tengja fræðilega umfjöllun námsins við raunverulega framkvæmd réttarkerfisins.
Í dómsal fengu nemendur innsýn í störf dómstóla, hlutverk dómara, saksóknara og verjenda sem og framgang aðalmeðferðar frá upphafi til enda.
Heimsóknin vakti mikinn áhuga nemenda og skapaði dýpri skilning á íslensku réttarkerfi og þeirri löggjöf sem fjallað er um í náminu.
Við þökkum starfsfólki dómstólsins fyrir góðar móttökur og fróðlega upplifun.
