FÁ tekur þátt í Samtali um framtíðina

Á myndinni eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Birgitta Líf Magnúsdóttir, forseti Nemendaféla…
Á myndinni eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Birgitta Líf Magnúsdóttir, forseti Nemendafélags FÁ, á Bessastöðum.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur óskað eftir samstarfi við framhaldsskóla landsins vegna Samtals um framtíðina sem fram fer dagana 9.–11. október. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samtal milli kynslóða um samfélagið og framtíðina.

Föstudaginn 11. september átti forseti Íslands samtal við skólameistara og stjórnendur framhaldsskóla um allt land þar sem verkefnið var kynnt og rætt um mikilvægt hlutverk skólanna í Samtalinu.

Síðar sama dag tók forseti á móti forystufólki framhaldsskóla- og háskólanema á Bessastöðum. Þar var meðal annarra Birgitta Líf Magnúsdóttir, forseti Nemendafélags FÁ, sem tók þátt fyrir hönd nemenda skólans.

Markmiðið með Samtalinu er ekki að allir verði sammála heldur að skapa rými þar sem fólk getur hlustað hvert á annað, lært hvert af öðru og rætt hvaða gildi og hugmyndir við viljum byggja íslenskt samfélag á. Yfirskrift verkefnisins er spurningin:

„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“

Framhaldsskólar gegna lykilhlutverki í verkefninu. Forseti hefur óskað eftir því að skólar um land allt opni dyr sínar laugardaginn 10. október og bjóði nemendum og fólki úr nærsamfélaginu að taka þátt í samtalinu. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku ungs fólks og verða nemendur fengnir til að leiða samtölin eftir að hafa fengið til þess þjálfun og stuðning. Einnig er hvatt til samtals milli kynslóða.

FÁ tekur að sjálfsögðu þátt í verkefninu og verður nánari dagskrá og upplýsingar um Samtalið í skólanum kynnt síðar.