Forseti Hæstaréttar tók á móti nemendum í viðskiptalögfræði

Nemendur í viðskiptalögfræði við Fjölbrautaskólann í Ármúla heimsóttu Hæstarétt Íslands þar sem þeir fengu innsýn í sögu og starfsemi réttarins.

Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar og Ólöf Finnsdóttir, skrifstofustjóri réttarins, tóku á móti hópnum og kynntu nemendum hlutverk og starfsemi dómstólsins.

Benedikt fór meðal annars yfir þær breytingar sem urðu á starfsemi Hæstaréttar þegar Landsréttur tók til starfa árið 2018. Einnig sagði hann frá sögu Hæstaréttar sem hefur starfað frá árinu 1920 og hefur verið til húsa á nokkrum stöðum í gegnum tíðina. Nemendur fengu jafnframt tækifæri til að skoða hið glæsilega dómshús við Arnarhól og fræðast um arkitektúr þess og sögu.

Heimsóknin þótti afar vel heppnuð og voru nemendur ánægðir með að fá tækifæri til að spyrja spurninga og kynnast starfsemi æðsta dómstóls landsins af eigin raun.