Gengið á Glym

Í FÁ er hægt að velja fjallgöngu/útivist sem áfanga og hægt er að velja hann í staðinn fyrir hefðbundins íþróttaáfanga. Boðið er upp á 4-5 göngur yfir önnina í nágrenni höfuðborgarsvæðissins.

Á laugardaginn síðasta, 19. september var fyrsta ganga vetrarins þegar 44 nemendur ásamt kennurum Þórhalli og Úlfari héldu inn í Hvalfjörð og gengu upp að Glym. Veðrið var frábært, sólin skein og haustlitirnir komnir.