- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
AM Nemendur í félagsfræði fóru í mjög skemmtilega ferð í Borgarleikhúsið í vikunni. Í þeirri heimsókn var ekki farið að sjá leikrit heldur hvernig leikrit verður til en markmið ferðarinnar var að læra um menningu í leikhúsi með því að notast við vettvangsathugun.
Hlynur samskiptastjóri Borgarleikhússins tók á móti hópnum og fór með þau í ævintýraferð um húsið. Þau fengu fræðslu um leikmunagerð, leikgervi og fleira. FÁ þakkar Hlyni og Borgarleikhúsinu kærlega fyrir frábærar móttökur.