- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Sex nemendur úr Fjölbrautarskólanum á Ármúla tóku þátt í Erasmus+ verkefni í Brussel í Belgíu dagana 4.-10. febrúar ásamt kennurunum Ásdísi Magneu og Eddu Láru. Heimsóknin var hluti af stóru Erasmus+ verkefninu “Democracy and Freedom” sem unnið er í samstarfi við skóla frá Lannion, Frakklandi, Emden Þýskalandi og Santo Tirso Portúgal. Nemendurnir sem tóku þátt í verkefninu voru þau Ragnheiður Sóley, Jenný, Vilberg Samuel, Hekla Sóley, Nadia Ursula og Eva.
Nemendur höfðu samið stefnuyfirlýsingu um framtíð ungs fólks í Evrópu sem þau kynntu fyrir nokkrum af ráðherrum Evrópusambandsins og að auki fengum við tvo fulltrúa frá Sendiráði Íslands sem hlýddu á kynningarnar.
Þau heimsóttu þrjár mikilvægustu stofnanir Evrópusambandsins: Evrópuþingið, Framkvæmdastjórn ESB og ráð Evrópusambandsins. Einnig var farið í heimsókn í sendiráð Íslands í Brussel, á söfn og kvikmyndahús. Nemendur okkar voru að öllu leyti til fyrirmyndar og stóðu sig mjög vel sem fulltrúar FÁ og Íslands.