Heimsókn til UN Women

Fulltrúar umhverfisráðs og nemendaráðs fóru í heimsókn til UN Women í dag og fræddust um starfsemina. Nemendur áttu innihaldsríkar samræður við starfsfólk UN Women og ræddu m.a. samfélagsmiðla, algrímið, hinsegin málefni og afhverju „woke“ virðist ekki lengur vera í tísku. Öll voru sammála um mikilvægi þess að mannréttindi fólks séu virt og að við þorum að tala máli þeirra sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu.

Fyrr á önninni styrktu nemendur skólans starfsemi UN Women með rósasölu sem fór fram á Valentínusardaginn. UN Women vinnur að jafnrétti og valdeflingu kvenna um allan heim. Helstu áskoranir starfseminnar í dag eru bakslag gegn mannréttindum, breytt heimsmynd og aukin átök.

Staða kvenna í heiminum

  • Á hverri mínútu eru 23 barnungar stúlkur þvingaðar í hjónaband
  • Á heimsvísu eru konur aðeins með 64% þeirra lagalegu réttinda sem karlmenn búa við
  • 45.000 konur eru myrtar árlega af maka eða nákomnum ættingja
  • Aðeins 27% þingfólks í heiminum eru konur

 

Hjá UN Women er unnið gott og gríðarlega mikilvægt starf og hafa samtökin staðið fyrir vitundavakningu og herferðum. Mörg kannast t.d. við FO - Fokk ofbeldi húfurnar sem eru árlega í sölu hjá samtökunum. Í ár rennur ágóðinn til verkefnis UN Women í Palestínu.

FO Húfan 2026 - UN Women Ísland | unwomen.is