- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Stefán Máni Unnarsson er 22 ára nemandi í skólanum. Hann er atvinnumaður í tölvuleiknum Rocket League. Hann byrjaði að æfa rafíþróttir 17 ára, eftir að hafa séð streymi af leiknum og ákveðið að hann vildi gera það sama. Síðar komst hann í lið þegar Íslandsmeistari á þeim tíma kom honum í samband við aðra sem spila leikinn og þeir stofnuðu lið saman. Hann fór í FÁ vegna þess að þar er hægt að vera á opinni braut og segir að það besta við skólann sé að hann sé opinn fyrir fólki sem klárar námið seinna eða á sínum hraða.
Eftir útskrift stefnir hann annað hvort á háskóla í Bandaríkjunum með Rocket League styrk eða í háskóla á Íslandi.
Aðspurður um leikina segir hann úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil á síðasta tímabili vera mest stressandi leikur sem hann hefur spilað. Fyrir þá sem vilja byrja í rafíþróttum segir hann mikilvægt að setja sér markmið, halda sér í líkamlegu og andlegu formi og passa að spila ekki allt of mikið.
Stefán segist ekki hafa neinn „guilty pleasure“ leik. Ef hann gæti fengið ofurkraft myndi hann vilja geta lesið hugsanir, sérstaklega hjá kennurum. Skrýtnasti ótti hans tengist klósettum í Ástralíu þar sem hann óttast að köngulær eða snákar gætu komið upp úr þeim. Aðspurður hvar sé best að fara á klósettið í skólanum svarar hann einfaldlega: A105.
Ef hann þyrfti að velja bara eitt heimilistæki myndi hann velja ísskáp svo það væri alltaf nóg af mat. Ef líf hans væri bíómynd segir hann að hún væri líkust Ready Player One.