Kapitola Kristín sigraði Söngkeppni FÁ

Söngkeppni FÁ fór fram á Árdegi skólans, fimmtudaginn 26. febrúar. Stemningin var frábær og dagskráin glæsileg. Hinn frábæri og skemmtilegi Elvis eftirherma var kynnir í keppninni og tók eitt lag við góðar undirtektir. Þá steig hin sívinsæla starfsmannahljómsveit ÚFF á svið og flutti þrjú lög – ekki margir skólar sem geta státað af jafn flottu starfsfólkshljómsveit. Nemendur í tónsmiðjunni tóku líka eitt lag.

Alls tóku sjö glæsileg atriði þátt og sýndu svo sannarlega að í FÁ er mikið af hæfileikaríku tónlistarfólki. Keppnin var jöfn og spennandi, en úrslitin urðu þau að Hafþór Fannar hreppti þriðja sætið með lagið “I Was Made for Lovin’ You” með Kiss. Elsa Sigríður lenti í öðru sæti með “Hopelessly Devoted to You” með Olivia Newton-John.

Sigurvegari keppninnar var Kapitola Kristín með glæsilegan flutning á laginu “Stand Out” úr myndinni Goofy Movie. Hún heillaði bæði með söng og sviðsframkomu og mun því keppa fyrir hönd FÁ í Söngkeppni framhaldsskólanna þann 11. apríl.

Hjartanlega til hamingju, Kapitola Kristín! 🎶✨