- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Ákveðið hefur verið að fella niður skólahald í Fjölbrautaskólanum við Ármúla á morgun, fimmtudaginn 26. mars vegna veðurs.
Gul viðvörun er á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 5:00 til 7:00 í fyrramálið og eftir það tekur appelsínugul viðvörun við og er í gildi til klukkan 13:00. Búast má við talsverðri snjókomu á höfuðborgarsvæðinu sem muni líklega valda slæmu skyggni og versnandi færð. Einnig er hætta á foktjóni. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra beinir því til fólks að sleppa því að vera á ferðinni ef það getur.
Við teljum þessa ráðstöfun nauðsynlega til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna skólans.