- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna var haldin dagana 14.-15. mars í Bíó paradís. Að venju var skipulagning hátíðarinnar í höndum nemenda FÁ en þau Benjamín, Búri, Hafþór, Iðunn, Ingigerður, Sara, Steinn Torfi og Sölvi sem og kvikmyndakennarinn þeirra Atli, eiga hrós skilið fyrir flotta skipulagningu og glæsilega hátíð.
Dómnefndina í ár skipuðu þau Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona, Harpa Hjartardóttir kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Bachmann leikari.
Heiðursgestir hátíðarinnar í ár voru leikstjórarnir Erlingur Óttar Thoroddsen og Ísold Uggadóttir
Verðlaunin voru ekki af verri endanum en þau voru ókeypis sumarnámskeið hjá New York Film Academy en einnig voru vinningar frá Kukl, Reykjavík Foto, Landsbankanum, Kvikmyndaskóla Íslands og fleirum.
Á hátíðinni í ár voru sýndar 21 frábærar stuttmyndir frá nemendum í 6 framhaldsskólum; FÁ, MH, Borgó, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Tækniskólanum. Einnig voru sýndar tvær stuttmyndir frá Grænlandi eftir nemendur í GUX framhaldsskólanum í Nuuk. Í framhaldinu verða svo tvær af sigurmyndum hátíðarinnar sýndar á sambærilegri hátíð í Nuuk nú í maí.
Kvikmyndahátíðin og Stockfish Film Festival hafa byrjað samstarf sem felst m.a. í því að sigurmyndir KHF verða sýnd í sérstöku programmi á laugardaginn 21. Mars í Bíó Paradís en hátíðin verður haldin núna dagana 19-29. mars.
Hér eru svo sigurvegarar hátíðarinnar:
Besta mynd - Kítl eftir Ingu Malen Andersen
Besta handrit – Keflavíkurgangan. Handrit eftir Andra Rafn Ævarsson, Helga Þóri Sigurðsson og Högna Gylfason
Framleiðendaverðlaun SÍK – Rauði draugurinn. Framleiðendur: Haukur Már Birgisson og Konráð Ingi Finnbogason
Besta leikari – Alexandra Rós Þorkelsdóttir í Eftir nklukkan sex
Besta myndataka – Ísak Magnússon fyrir Kítl
Besta tæknilega útfærsla – Kítl eftir Ingu Malen Andersen
Hildarverðlaunin fyrir bestu tónlist – Indriði Elvar Magnússon fyrir Kyrrðin blíður
Áhorfendaverðlaun laugardags – Depill eftir Sölva Davíðsson
Áhorfendaverðlaun sunnudags – Kítl eftir Ingu Malen Andersen
Hér má sjá sýningaskrá hátíðarinnar: https://heyzine.com/flip-book/b85b24420b.html
