- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Miðvikudaginn 11. nóvember var árlegt opið hús haldið á Sérnámsbraut FÁ. Viðburðurinn er hluti af fjáröflun LOK-hóps deildarinnar og var bæði núverandi nemendum og þeim sem útskrifuðust síðastliðið vor boðið að koma saman og eiga skemmtilega stund.
Það var nóg um að vera þetta kvöld en boðið var upp á spil, spjall, karókí, happdrætti og að sjálfsögðu pizzur og drykki.
Kvöldið heppnaðist einstaklega vel og mætti um helmingur boðsgesta til að njóta samverunnar og skemmta sér með félögum sínum. Gleðin var við völd og margir fóru auk þess heim með glæsilega vinninga úr happdrættinu.
Það er alltaf jafn gaman að hittast aftur og rifja upp góðar stundir.