Metþátttaka í skautaferð FÁ

Það var sannkallað líf og fjör í Skautahöllinni í Laugardal dag þegar nemendur FÁ skelltu sér á skauta í tilefni af Íþróttaviku Evrópu.

Sú skemmtilega hefð hefur skapast í skólanum að bjóða nemendum í skautaferð einu sinni á önn og hefur ferðin notið mikilla vinsælda. Í dag mættu rúmlega 200 nemendur á svellið og hefur þátttakan aldrei verið meiri.

Stemningin var frábær, allir skemmtu sér vel og sem betur fer sluppu allir við meiðsli. Að skautaferð lokinni fengu nemendur samloku frá Sóma og safa í boði Nemó.

Takk fyrir frábæran dag flottu nemendur!

Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu skólans.