Mikil gleði á Árdeginum

Á fimmtudaginn í síðustu viku, 26. febrúar var árlegur Árdagur haldinn í FÁ, einn skemmtilegasti dagur ársins. Árdagar eiga sér langa sögu í FÁ en þá daga gera nemendur og starfsmenn sér dagamun og brjóta upp hefðbundinn skóladag.

Nemendur skiptu sér í tæplega 20 lið, hvert lið merkt ákveðnum lit eða mynstri. Liðin kepptu síðan sín á milli í fjölbreyttum þrautum sem starfsfólk var búið að undirbúa. Þrautirnar spönnuðu allt frá íþróttum til lista, heilaleikfimi til handavinnu, perluföndri til spurningakeppna. Þessum skemmtilega degi lauk svo á söngkeppni og pizzaveislu.

Það var fjólubláa liðið sem vann keppnina eftir harða baráttu við það gráa. Stóðu þau sig vel í þrautunum og voru þau dugleg að hvetja liðsfélaga sína og halda uppi góðri stemningu.

Árdagur er alltaf jafn skemmtilegur og einkennist af gleði og samvinnu. Markmiðið er ekki einungis að leysa verkefnin, heldur einnig að efla tengsl milli nemenda og skapa jákvætt og uppbyggilegt andrúmsloft í skólanum.  Mikil gleði var með Árdaginn í ár, þrautirnar nýjar og skemmtilegar og skipulagið til fyrirmyndar.