- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Tölvuleikir eru ein stærsta afþreyingar- og skapandi grein heims og áhrif þeirra ná langt út fyrir skjáinn. Þeir tengjast tækni, listum, hönnun, sagnagerð, samskiptum og nýsköpun.
Í haust býður Fjölbrautaskólinn við Ármúla upp á nýja Tölvuleikjalínu innan Nýsköpunar- og listabrautar, þar sem nemendur fá tækifæri til að skoða tölvuleiki í víðari samhengi.
Á línunni er boðið upp á fjölbreytta áfanga á borð við:
🎮 Leikjahönnun
🕹️ Rafíþróttir
📚 Tölvuleikjafræði
🌍 Sögu tölvuleikja
💡 Nýsköpun og skapandi verkefni
Námið sameinar tækni og sköpun og hentar vel þeim sem hafa áhuga á leikjum, hönnun, listum, stafrænum miðlum og framtíðartækni.
🚀 Þar sem tækni mætir sköpun.
👉 Kynntu þér Tölvuleikjalínuna:
https://www.fa.is/is/namid/namsbrautir/nyskopunar-og-listabraut/tolvulina
📅 Umsóknarfrestur fyrir haustönn stendur yfir til 10. júní.