- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Daniel do Carmo Njarðarson, nýstúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla, var þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í hátíðarhöldunum á Austurvelli í tilefni af 82 ára afmæli lýðveldisins. Með honum í athöfninni var Eyrún Freyja Andradóttir, nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar.
Sú hefð hefur skapast að tveir nýstúdentar, einn frá hvorum skóla, eru valdir ár hvert á þjóðhátíðardaginn 17. júní til að bera blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Forsetisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, lagði síðan blómsveiginn að minnisvarðanum við hátíðlega athöfn.
Við í FÁ erum afar stolt af því að Daniel hafi verið valinn til þessa virðulega hlutverks og tekið þátt í þessari hátíðlegu athöfn á þjóðhátíðardegi Íslendinga.


