- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Mario Kart World tölvuleikjamót FÁ fór fram í gær en nemendur í rafíþróttaáfanganum RAFÍ2SM03 sáu um að skipuleggja mótið. Tæplega tuttugu nemendur tóku þátt og var stemningin í hópnum mjög góð. Eftir spennandi keppni stóð Kacper uppi sem sigurvegar og fékk 20.000 kr inneign í Elko í verðlaun. Jason endaði í 2. sæti og vann eintak af tölvuleiknum Super Mario Party Jamboree í boði Ormsson og Júlía var í þriðja sæti og fékk inneign hjá Next Level Gaming. Allir þátttakendur fóru í lukkupott og gátu unnið inneign hjá NINGS og Next Level Gaming.
