Sjálfbærar flutningsleiðir í Evrópu árið 2050

Dagana 26. febrúar – 5. mars tók FÁ þátt í Erasmus verkefninu Sustainable Mobility in Europe 2050). Fimm úrvalsnemendur frá skólanum tóku þátt; þau Birna Clara, Dísa María, Heorhii, Ísold og Míkah ásamt kennurunum Ásdísi og Þórhalli. Samstarfsskólarnir frá Sante Tirso í Portúgal, Lannion í Frakklandi og Emden í Þýskalandi sendu viðlíka fulltrúa.

Dagarnir voru undirlagðir þéttskipaðri dagskrá, vettvangsferðum, vinnustofum og auðvitað afþreyingu. Nemendur fræddust um það hvernig ólíkir flutningsmátar hafa áhrif á umhverfið og veltu fyrir sér áskorunum og mögulegum lausnum.

Farin var dagstúr með leiðsögn í Volkswagen Golf-verksmiðjuna í Emden sem er ein fullkomnasta rafbílaverksmiðja í heimi. Nemendur öðluðust skilning á mikilvægi rafknúinna bíla til að minnka kolefnisfótspor en jafnframt þeim áskorunum sem verksmiðjan og bílaframleiðendur almennt standa frammi fyrir. Heimsóknin var mjög áhrifamikil og var skemmtilegt að fylgjast með framleiðsluferli og framleiðslulínunni. Því miður voru engar myndatöku leyfðar.

Í Emden háskólanum fengu þau frábæra leiðsögn um ýmsar rannsóknarstofur, sem standa framarlega í rannsóknum á sjálfbærum framtíðarlausnum í samgöngu og flutningsmátum, orkurannsóknum og vinnslu. Þróun vélmenna og Hyperloop lestarkerfið vöktu sérstakan áhuga okkar.

Fyrstu dagarnar fóru mikið í vettvangsferðir og kynningar en undir lokin unnu nemendur talsvert í hópum, voru með framsögur og kynningar tengdum þeim áskorunum sem Evrópa stendur frammi fyrir og ræddu mögulegar framtíðarlausnir.

Nemendur stóðu sig frábærlega, voru frábærir ferðafélagar og voru skólanum til sóma.