Sjúkraliðanemar tóku á móti nemum frá Portúgal og Tékklandi

Dagana 30. mars til 5. apríl sl. komu í heimsókn til okkar í Fjölbraut við Ármúla, sjúkraliðanemendur frá Tékklandi og Portúgal. Var heimsóknin þriðji og jafnframt síðasti fundur ERASMUS + verkefnis sem þessir þrír skólar hafa starfað saman að síðan undirbúningur hófst haustið 2023. Áður höfðu nemendur og kennarar frá FÁ heimsótt Trutnov í Tékklandi í janúar 2024 og svo Coimbra í Portúgal í október 2024.

Markmið með verkefninu var að bera saman nám og störf sjúkraliða út frá ýmsum vinklum. En stórt markmið með svona verkefni er einnig að kynnast öðrum nemendum og annarri menningu og sjá hvernig nám og starf fer fram í öðrum löndum. Ýmislegt var borið saman í þessu verkefni, má þar telja lyfjagjafir, umbúnað við lok lífs og hæfni og kröfur til heilbrigðisstarfsfólks. Allir lærðu eitthvað og miklar umræður áttu sér oft stað á milli nemenda og kennara. Sýnikennsla var einnig í sumum tilvikum, sem var oft skemmtilegt og uppspretta hugleiðinga um muninn á milli landa. Í svona verkefni er einnig reynt að koma fyrir kynningu á stofnunum og starfsemi í því landi sem fundurinn er haldinn. Í heimsókninni til okkar í FÁ fórum við með gestina víða. Við heimsóttum Sjúkrahótelið á Hringbraut, Landspítalann á Landakoti, Heilsustofnun í Hveragerði, Hrafnistu við Sléttuveg og svo kíktum við á nemendur FÁ í Tanngarði. Allsstaðar var afskaplega vel tekið á móti hópnum sem taldi alls um 15 nemendur og kennara. Svo var auðvitað farið með gestina Gullna hringinn og í Friðheima.

Verkefnið var afar vel heppnað og er eitt af mörgum ERASMUS + verkefnum sem FÁ tekur þátt í á ári hverju.