- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Árlegur skólafundur Fjölbrautaskólans við Ármúla var haldinn í dag, miðvikudaginn 7. október. Einu sinni á ári er kennsla felld niður í eina kennslustund og tíminn nýttur til fræðslu og umræðna um málefni sem snerta nemendur, skólasamfélagið og samfélagið í heild.
Nemendur unnu í litlum hópum undir leiðsögn kennara og ræddu sex ólík málefni. Að þessu sinni var meðal annars rætt um einmanaleika ungs fólks, líðan ungmenna, rasisma, notkun gervigreindar í námi, stöðu íslenskunnar og framhaldsskólakerfið.
Meðal spurninga sem nemendur veltu fyrir sér var hvernig hægt væri að draga úr einmanaleika ungs fólks, en samkvæmt lýðheilsuvísum Landlæknis finna 29% framhaldsskólanema oft til einmanaleika. Einnig ræddu nemendur hvort og hvernig ætti að nota gervigreind í verkefnum og prófum og hvað hægt væri að gera til að efla notkun íslenskunnar.
Markmið skólafundarins er að gefa nemendum tækifæri til að tjá skoðanir sínar, hlusta á sjónarmið annarra og taka þátt í umræðu um málefni sem skipta þau máli. Kennarar tóku saman helstu hugmyndir og sjónarmið sem komu fram í hópunum og verður áhugavert að skoða niðurstöðurnar.