- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Þann 25. maí hélt 60 manna hópur kennara og starfsmanna í FÁ til Rómar í Ítalíu. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér starfið í tveim skólum í borginni Ferentino og í Róm. Tveir ólíkir en flottir skólar sem gaman var að heimsækja.
Menntaskólakerfið á Ítalíu er að mörgu leyti frábrugðið því íslenska. Nemendur hefja framhaldsskólanám um 14 ára aldur og námið stendur yfir í fimm ár. Strax við upphaf náms velja nemendur skóla- og námsleið eftir áhugasviði sínu og framtíðaráformum.
Helstu tegundir framhaldsskóla eru licei (bóknámsskólar með áherslu á meðal annars hugvísindi, náttúruvísindi eða tungumál), istituti tecnici (tæknileg og viðskiptatengd nám) og istituti professionali (starfs- og verkmenntun). Nemendur sérhæfa sig því fyrr en tíðkast á Íslandi eða um 14 ára aldur.
Að loknu fimm ára námi þreyta allir nemendur samræmt lokapróf, Esame di Stato eða Maturità, sem er mikilvægur áfangi og veitir aðgang að háskólanámi. Prófið samanstendur af skriflegum og munnlegu prófi þar sem metin er þekking og hæfni nemenda á breiðum grunni.
Í heimsókn okkar fengum við tækifæri til að kynnast þessu kerfi nánar, skoða hvernig kennslu og námsmati er háttað og bera það saman við íslenskt skólakerfi.
Auk fróðlegra skólaheimsókna gafst kennurum og starfsfólki kostur á að upplifa sögu og mannlíf Rómar af eigin raun og njóta borgarinnar í dásamlegu veðri.
Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu skólans.