Skuggakosningar í FÁ

Í síðustu viku fóru fram Skuggakosningar í framhaldsskólum landsins og að sjálfsögðu tókum við í FÁ þátt. Skuggakosningar eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar kjósa sína fulltrúa í sveitarstjórnarkosningum og munu endurspegla vilja nemenda um allt land.

Frambjóðendur 11 stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Reykjavík komu í heimsókn í skólann á þriðjudaginn 28. apríl, kynntu málefni sín og sátu fyrir svörum. Nemendur í heimspeki og félagsfræði kenninga sáu um skipulag og stjórnun fundarins og fór hann mjög vel fram. Nemendur komu með frábærar spurningar og voru vel undirbúin.

Skuggakosningarnar sjálfar fóru svo fram á Steypunni, miðvikudaginn 29. apríl, en nemendur sem voru fæddir 15. maí 2024 og síðar voru á kjörskrá.

Kosningarþátttaka var 19%. Vonandi verður kosningaþátttaka ungs fólks heldur meiri í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram 16. maí og óskum við nýjum kjósendum til hamingju með kosningaréttinn.