- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
Þrír kennarar Fjölbrautaskólans við Ármúla ferðuðust til Ítalíu á dögunum í tengslum við Erasmus+ verkefnið We Shape the Future: Integrating AI, AR and VR in Education. Um er að ræða samstarfsverkefni milli þriggja skóla sem staðsettir eru á Íslandi, Grikklandi og Tyrklandi auk aðkomu sérfræðinga frá Ítalíu sem veita leiðsögn og fræðslu. Markmið verkefnisins er að kanna með hvaða hætti sýndarveruleiki, gagnaukinn veruleiki og gervigreind getur nýst í námi og kennslu innan STEM-greina, þ.e.a.s. greina á sviði verkfræði, stærðfræði, raunvísinda og náttúruvísinda.
Í ferðinni var tæknin kynnt fyrir þátttakendum og rætt um möguleika hennar. Hugbúnaðarlausnir til að skapa gagnvirka þrívíddarheima í sýndarveruleika og námsefnagerð í gagnauknum veruleika voru auk þess prófaðar.
Ferðin var vel heppnuð og mun hópurinn hittist næst í september í FÁ þar sem kafað verður dýpra í möguleika sýndarveruleikans.