Takk fyrir komuna á opið hús

Í gær var opið hús í FÁ fyrir 9. og 10.bekkinga, forráðamenn þeirra og aðra áhugasama. Það var mjög góð mæting og frábær stemning. Við þökkum öllum fyrir komuna og vonumst til að sjá sem flesta á næstu önn.

Til að kynna sér skólann enn frekar þá eru upplýsingar hér.

Innritun stendur yfir fyrir eldri nemendur til 26. maí. Innritun fyrir nýnema (úr grunnskóla) hefst 24. apríl og stendur til 10. júní. Innritun fer fram á www.innritun.is