This War of Mine og heimsókn frá pólska sendiráðinu

Hvernig geta tölvuleikir hjálpað okkur við að setja okkur í spor annara, aukið samkennd og skilning á aðstæðum sem við þekkjum ekki? Þessum spurningum veltu nemendur í Yndisspilun fyrir sér eftir að hafa spilað leikinn This War of Mine.

Í This War of Mine stýra leikmenn ekki ódauðlegrum stríðshetjum líkt og í flestum vinsælum stríðsleikjum, heldur þurfa þeir að lifa af sem almennir borgarar í stríðshrjáðri borg þar sem lyf og matur er af skornum skammti. This War of Mine reynir ekki að fegra hlutina fyrir leikmönnum sem þurfa að taka erfiðar ákvarðanir við krefjandi aðstæður. Umsátur Sarajevo í Bosníustríðinu á tíunda áratugnum og önnur borgarastríð er innblástur leikjahönnuða pólska leikjafyrirtæksins 11 bit Studios sem sá um þróun og útgáfu leiksins. Nokkrir nemendur í Yndisspilun spiluðu leikinn og skrifuðu dagbókarfærslur um upplifun sína og hugleiðingar. Í framhaldinu heimsótti Maciej Duszyński, staðgengill sendiherra Póllands á Íslandi, nemendur til að ræða um This War of Mine, tölvuleiki sem námsgagn og pólska leikjaiðnaðinn. Þess má geta að þá er This War of Mine á opinberum námsgagnalista í Póllandi og notaður í skólum þar í landi.

Yndisspilun er áfangi á nýrri tölvuleikjalínu Nýsköpunar- og listabrautar. Í áfanganum eru nokkur mismunandi þemu tekin fyrir yfir önnina sem kynna nemendum fyrir fjölbreyttri flóru tölvuleikja. Meðal annars voru tölvuleikir spilaðir sem sýna hvernig tölvuleikir eru notaðir sem frásagnarform, sem listform, sem afþreying, sem keppnisgrein og sem gagnvirkur miðill.

Maciej Duszyński, staðgengill sendiherra Póllands á Íslandi og Bjarki tölvukennari.