Umhverfisdagur á afmæli Vigdísar Finnbogadóttur 

Umhverfisdagur skólans var haldinn í gær, miðvikudag þann 15. apríl á 96 ára afmælisdegi Vigdísar Finnbogadóttur. Það var sérlega viðeigandi tímasetning, því Vigdís lagði mikla áherslu á umhverfis og náttúruvernd í sinni forsetatíð og hefur haldið því áfram allar götur síðan.

Umhverfisráð skólans stóð fyrir stöðvakeppni á skólalóðinni í tilefni dagsins, þar sem nemendur fræddust m.a. um útrýmingarhættu dýra, matarsóun, umhverfisvæn matvæli, veitnakerfið, flokkun, plokkun, þvott á fötum og fleira.

Eftir keppnina voru grillaðar pylsur ofan í svanga nemendur og starfsfólk og stóð nemendaráðið vaktina við grillið ásamt dyggum aðstoðarmönnum úr hópi nemenda. Tónlistarmaðurinn Lil Ru (Eðvarð Rafn Flóruson Hackert) hélt svo stemningunni gangandi yfir hádegishléið.

FÁ var fyrsti grænfánaskólinn á Íslandi og hefur reglulega haldið umhverfisdag sem nemendur taka virkan þátt í að skipuleggja. Allir nemendur við skólan fara í umhverfisfræði og nemendur úr áfanganum koma að skipulagi dagsins árlega. Í ár völdu nemendur að leggja áherslu á náttúruvernd í Grænfánanum og Vigdís Finnbogadóttir er sérstök fyrirmynd í þeim efnum en hún lagði ríka áherslu á að fræða ungt fólk um mikilægi þess að vernda náttúruna. Hún telur einstaklega mikilvægt að Íslendingar séu sammála um að hafa náttúruvernd í heiðri allar stundir og hefur ekki áhyggjur af framtíðinni.

“Ég hef ekki áhyggjur af framtíðinni. Áhyggjur og kvíði draga úr orku og kjarki. Ég hef mikla trú á landinu, því það gefur mér og öðrum landsmönnum orku til að vernda það” - Vigdís Finnbogadóttir.