Umhverfisfréttafólk

Á ári hverju býðst ungu fólki í grunn- og framhaldsskólum að taka þátt í samkeppni á vegum Landverndar. Samkeppnin ber heitið Umhverfisfréttafólk og snýst um að koma umhverfismáli að eigin vali á framfæri við almenning með fjölbreyttum leiðum.

Tveir nemendur í ljósmyndavali í FÁ - LJÓS2SM05 undir stjórn Jeannette Castioni, tóku myndir, unnu þær og sendu í keppnina.

Verðlaunaathöfn keppninnar fór fram á mánudaginn 27. apríl í húsakynnum Landverndar.

Loki Úlfur Skarphéðinsson nemandi í FÁ fékk viðurkenningu fyrir listsköpun fyrir ljósmyndina sína “Beings of the Dawn”.

Ingigerður Anna Bergvinsdóttir var einnig með 2 ljósmyndir í keppninni og sem kallast „Bernska úr plasti“. Mjög áhugaverðar og frumlegar myndir.

Hér má sjá fleiri úrslit í keppninni: https://graenfaninn.is/2026/04/30/sigurvegarar-i-umhverfisfrettafolki-2026/

Innilegar hamingjuóskir Loki Úlfur :)

 

Myndir Ingigerðar - Bernska úr plasti