Á föstudaginn síðastliðinn, þann 24.apríl, fór Kvikmyndaráð FÁ í heimsókn í Háskólabíó og tók þátt í umræðuviðburði ásamt fulltrúum kvikmyndafræðideilda HÍ og LHÍ, þeim Birni Þór Vilhjálmssyni og Guðrúnu Elsu Bragadóttur. Umræðuviðburðurinn markaði endapunkt á reglulegum samræðufundum sem kvikmyndaráð hefur haldið á vorönninni. Samhliða þessu unnu nemendur skriflegt verkefni um stöðu og framtíð kvikmynda í ljós nýrrar tækni. Helstu niðurstöður nemenda verða teknar saman í skýrslu og kynntar fulltrúum Kvikmyndamiðstöðvar.