Upphaf haustannar 2025

Nú er starfið að komast í fullan gang í skólanum eftir sumarleyfi og erum við öll spennt að hitta nemendur eftir gott sumarfrí.

Stundatöflur og fyrsti kennsludagur

Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU föstudaginn 15. ágúst. Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn. Skráðir aðstandendur nemenda yngri en 18 ára hafa aðgang með rafrænum skilríkjum.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 19. ágúst.

Móttaka nýnema

Nýnemar verða boðnir velkomnir í skólann á nýnemadegi sem er mánudaginn 18. ágúst kl. 10:00 - 14:00.

Fundur með eldri nýnemum verður í fyrirlestrasal mánudaginn 15. ágúst kl. 15:00.

Ýmsar hagnýtar upplýsingar

Við bendum á upplýsingasíðu um upphaf annar og hvetjum nem­endur til að kynna sér efni síðunnar. Þar má finna ýmsar upp­lýs­ingar um skólann og skóla­starfið.

Töflubreytingar fara fram 15. - 18. ágúst og fara þær fram á Innu. Síðasti dagur til að skrá sig úr áfanga er 4. september.

Nem­endur finna upp­lýs­ingar um bækur og náms­gögn í Innu. Það er einnig hægt að skoða námsgagnalista fyrir haustönn 2025 í exc­elskjali.

Kynningafundur fyrir foreldra/forráðamenn verður haldinn mánudaginn 25. ágúst kl. 17:00 í fyrirlestrarsal skólans. Á fundinum verður farið yfir ýmsa þætti í starfi skólans.

Nýnemaferðin verður í byrjun september. Nánari upplýsingar verðar sendar þegar nær dregur.

Skráning í fjarnám við FÁ á haustönn hefst 18. ágúst og önnin hefst 2. september. Nánari upplýsingar um fjarnám FÁ má sjá á heimasíðu skólans.

Við viljum minna á að í upphafi skólaárs er líka gott að gott að glöggva sig á öllum helstu dagsetningum á skólaárinu og skrá hjá sér. Hér er hlekkur á skóladagatal næsta skólaárs.

Einnig hvetjum við alla til að fylgjast með fréttum úr skólastarfinu á Facebook og Instagram.

Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef einhverjar spurningar vakna - fa@fa.is

Við hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju skólaári.