Útskrift vor 2025

Það var bæði létt yfir og hátíðlegt þegar Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði nemendur sína í dag. Fjölskyldur, vinir og starfsfólk komu saman til að fagna með útskriftarnemum sem nú hverfa út í ný framtíðarverkefni.

Alls útskrifuðust 126 nemendur og þar af 13 af tveimur brautum.

79 nemendur útskrifuðust sem stúdentar. 10 útskrifuðust af félagsfræðibraut, 1 af íþrótta og heilbrigðisbraut og 6 af náttúrufræðibraut. Af opinni braut útskrifuðust 45, 5 af viðskipta- og hagfræðibraut og 3 af heilbrigðisvísindabraut.

Frá nýsköpunar og listabraut útskrifast 6 og 17 með viðbótarnám að loknu starfsnámi.

Af heilbrigðissviði útskrifuðust 38 nemendur, einn útskrifast af heilbrigðisritarabraut, 4 af lyfjatæknabraut, 2 af heilsunuddbraut, 19 af sjúkraliðabraut og loks 12 af tanntæknabraut.

Átta frábærir nemendum útskrifuðust síðan af sérnámsbraut.

Dúx skólans að þessu sinni er Ngan Kieu Tran sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9.82. Það sem gerir árangur hennar enn eftirtektarverðari er að hún kom til Íslands frá Víetnam í júlí 2022 og hóf nám í FÁ aðeins nokkrum vikum síðar án þess að kunna tungumálið. Hún fékk einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í íslensku, stærðfræði, spænsku, ensku og raungreinum. Óskum við henni hjartanlega til hamingju.

Eftirfarandi útskriftarnemendur fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í einstökum námsgreinum eða brautum:

Ngan Kieu Tran - íslenska, stærðfræði, spænska, enska og raungreinar.

Dana Zaher El Deen K. Al Hennaw - íslenska, spænska og félagsgreinar.

Diana Al Barouki - íslenska, spænska og listgreinar.

Uyen Thu Vu Tran - viðskipta- og hagfræðigreinar.

María Hólmfríður Fons Eiríksdóttir - sérgreinar sjúkraliðabrautar

Steinunn Vala Víðisdóttir - sérgreinar sjúkraliðabrautar

Brynja Guðmundsdóttir - efnafræði og  aðstoðarkennsla í Setrinu

Margrét Phuong My Du - sérgreinar lyfjatæknabrautar.

Anna Ýr Sveinsdóttir - sérgreinar tanntæknabrautar.

Arnór Ingi Óðinsson - listgreinum

Ísold Ylfa Teitsdóttir – kvikmyndagerð

Diana Al Barouki flutti kveðjuávarp fyrir hönd útskriftanema og Harpa Egilsdóttir flutti kveðjuávarp fyrir hönd útskriftarnema heilbrigðisskólans.

Útskriftarneminn Diana Al Barouki flutti lagið “I love you” eftir Omar Faruk Tekbilek á fiðlu. Síðan lauk athöfninni með hátíðlegum samsöng allra viðstaddra á Vikivaka við undirleik Katrínar Eddu og Markuss Veide á gítar.

Magnús Ingvason skólameistari og Kristrún Birgisdóttir aðstoðarskólameistari fluttu ávörp og fóru yfir liðna önn.

Í ræðu sinni ræddi Magnús Ingva­son skóla­meist­ari um „sí­vax­andi flótta­manna­vanda sem má rekja til upp­skeru­brests vegna lofts­lags­breyt­inga og hlýn­un­ar jarðar og sölu dráps­tækja til ým­issa skúrka víða um heim, mest í boði hinna vel­meg­andi vest­rænna ríkja sem ann­ars veg­ar standa fyr­ir mestri meng­un og hins veg­ar á hag­vaxt­ar­drif­inni vopna­sölu“.

Kristrún Birg­is­dótt­ir aðstoðarskóla­meist­ari endaði sitt ávarp með að segja:

„Munið að árangur er ekki alltaf mældur í einkunnum heldur því hvernig þið mótið ykkar eigin leiðir í lífinu, hvernig þið komið fram við aðra og hvernig þið nýtið þann kraft og þá þekkingu sem þið hafið aflað ykkur.

Myndir frá útskrift.

Myndir frá útskrift heilbrigðissviðs.

Myndir frá útskrift sérnámsbrautar.

Fleiri myndir má einnig sjá á Facebook síðu skólans.