Útskrift vor 2026

Það var bæði létt yfir og hátíðlegt þegar Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði nemendur sína í dag. Fjölskyldur, vinir og starfsfólk komu saman til að fagna með útskriftarnemum sem nú hverfa út í ný framtíðarverkefni.

Alls útskrifuðust 86 nemendur og luku 2 þeirra námi af tveimur brautum.

61 nemandi lauk stúdentsprófi. 4 útskrifuðust af félagsfræðibraut, 1 af íþrótta- og heilbrigðisbraut og 7 af náttúrufræðibraut. Af opinni braut útskrifuðust 34, 4 af viðskipta- og hagfræðibraut og 1 af heilbrigðisvísindabraut.

Frá nýsköpunar- og listabraut útskrifuðust 4 og 11 með viðbótarnám að loknu starfsnámi.

Af heilbrigðissviði útskrifuðust 22 nemendur, einn útskrifast af heilbrigðisritarabraut, 3 af lyfjatæknabraut, 9 af heilsunuddbraut, 6 af sjúkraliðabraut og loks 3 af tanntæknabraut.

Sjö frábærir nemendur útskrifuðust síðan af sérnámsbraut.

Guðrún Reynisdóttir fékk viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi en hún útskrifaðist af náttúrufræðibraut.

Eftirfarandi útskriftarnemendur fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í einstökum námsgreinum eða brautum:

Enska - Selma Victoría Sigurjónsdóttir

Stærðfræði og efnafræði - Guðrún Reynisdóttir

Félagsgreinar - Sara Jóhanna Geirsdóttir Waage

Kvikmyndagreinar - Brynjar Orri Smith

Myndlist - Birna Clara Ragnarsdóttir, Dísa María Eyþórs Erlendsdóttir, Malini Sakundet og Maria Cecilia Melo Curiel.

Tanntæknabraut - Heiða Ósk Gunnarsdóttir

Heilbrigðisritarabraut - Ásthildur Kristín Júlíusdóttir

Lyfjatæknibraut - Ingibjörg Hansdóttir

Sjúkraliðabraut - Oddný Lilja Birgisdóttir

Heilsunuddbraut - Saga Fenger Þórðardóttir

Félagsmál - Sara Jóhanna Geirsdóttir Waage

Gettu betur - Iðunn Úlfsdóttir

Sara Jóhanna Geirsdóttir Waage flutti kveðjuávarp fyrir hönd útskriftanema og Oddný Lilja Birgisdóttir flutti kveðjuávarp fyrir hönd útskriftarnema heilbrigðisskólans.

Einn kennari skólans til 27 ára var kvaddur en það var hún Svanhildur Pálmadóttir stærðfræðikennari.

Tónlistarflutningur á athöfninni var í höndum Dzonotans Mikelis Rogulis, Katrínar Eddu Sveinbjörnsdóttur, Markuzz Veide og Höskuldar Eiríkssonar. En þau fluttu lagið Tomorrow Is Closed eftir Nothing But Thieves.Lauk síðan athöfninni með hátíðlegum samsöng allra viðstaddra á laginu Vikivaki eftir Jóhannes úr Kötlum.

Magnús Ingvason skólameistari og Kristrún Birgisdóttir aðstoðarskólameistari fluttu ávörp og fóru yfir liðna önn.

Í ræðu sinni hvatti Magnús skólameistari nemendur til að einbeita sér að því sem þeir hafa í stað þess sem þeir hafa ekki. Þegar þeir hafa ekki það sem þau elska, þá verði þeir að elska það sem þau hafa.

Kristrún Birg­is­dótt­ir aðstoðarskóla­meist­ari endaði sitt ávarp með að segja:

„Munið að árangur er ekki alltaf mældur í einkunnum heldur því hvernig þið mótið ykkar eigin leiðir í lífinu, hvernig þið komið fram við aðra og hvernig þið nýtið þann kraft og þá þekkingu sem þið hafið aflað ykkur.

Myndir frá útskrift - stúdentar.

Myndir frá útskrift heilbrigðissviðs.

Myndir frá útskrift sérnámsbrautar.