- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Fimm manna hópur frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla heimsótti borgina Eskişehir í Tyrkland í seinustu viku til að fræðast um möguleika gervigreindar í námi og kennslu. Ferðin var liður í Erasmus-verkefninu We Shape the Future: Integrating AI, AR and VR in Education þar sem möguleikar sýndarveruleika, gagnaukins veruleika og gervigreindar eru skoðaðir með áherslu á STEM-greinar. Í Tyrklandi unnu nemendur frá Íslandi, Grikklandi og Tyrklandi saman í verkefnum þar sem gervigreind var notuð í eðlisfræði og efnafræði. Þátttakendur verkefnisins fengu einnig fræðslu um almenna notkun gervigreindar.
Farið var í dagsferð þar sem borgirnar Bursa og Iznik voru skoðaðar og bragðað á tyrkneskum mat, farið á útimarkaði, heimsótt moskur, nýlistasafn, fornminjasöfn og skoðað grafhýsi Osman Gazi, stofnanda Tyrkjaveldis.
Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla fóru þau Andri Ingvason raungreinakennari, Bjarki Þór Jónsson tölvukennari ásamt nemendunum Emilíu, Malaiku og Meriem.
Fleiri myndir á Facebook síðu skólans.