Verðlaunahafar í íslenskugetraun á degi íslenskrar tungu

Í tilefni af degi íslenskrar tungu stóð íslenskudeildin fyrir skemmtilegri spurningaþraut um Jónas Hallgrímsson þar sem nemendur fengu tækifæri til að spreyta sig á þekkingu sinni.

Kjartan Ingólfsson og Karen Sól Helgadóttir stóðu uppi sem verðlaunahafar og hlutu viðurkenningu fyrir árangurinn. Helgi deildarstjóri íslenskudeildar afhenti þeim verðlaunin í gær. Þess má geta að Karen Sól á einmitt afmæli á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember :)

Við óskum Kjartani og Karen Sól innilega til hamingju með árangurinn!