- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Nemendur í fjölmiðlafræði gáfu út skólablaðið Steypan núna í febrúar. Hér birtum við grein úr blaðinu eftir Mínervu Geirdal Freysdóttir og Salma Bennarsi.
Skólameistarinn í FÁ heitir Magnús og er 65 ára. Hann ólst upp í Fossvogi, bjó þar frá 10 ára aldri til tvítugs. Hann hafði þó búið á nokkrum stöðum áður en hann flutti þangað.
Hann var aðstoðarskólameistari í öðrum skóla og fannst það starf mjög áhugavert og þegar staðan í FÁ losnaði þá langaði honum að nýta sér það tækifæri.
Hann segir að vinsælustu brautirnar í FÁ séu opin braut og nýsköpunar- og listabraut en einnig brautir í heilbrigðisskólanum.
Magnús fór í FB og sagði frá reynslu sinni þar: „Ég var ekkert rosalega duglegur nemandi, ég var góður í því sem mér fannst gaman en ekki alveg nógu öflugur í hinu” segir hann. Hann kláraði þó stúdentinn og var mikið í félagslífinu öll árin.
Ef Magnús þyrfti að kenna eitt fag í skólanum í heila viku myndi hann velja fjölmiðlafræði þar sem hann lærði hana í Bandaríkjunum og kenndi fjölmiðlafræði í 15 ár. Það sem hafði mest áhrif á að hann varð skólameistari var að þegar hann var ungur og nýútskrifaður sem stúdent, fór hann að kenna 9. og 10. bekk á Akranesi og sá hann hversu vel það átti við hann að kenna, honum fannst það svo skemmtilegt. Ef hann væri ekki skólameistari þá gæti hann hugsa sér að vera fararstjóri „þvælast eitthvert, ferðast eitthvað og svoleiðis”.
Fyrsta vinna Magnúsar þegar hann var 14 ára og var í verktakafyrirtæki þar sem hann var til dæmis að helluleggja gangstéttir.
Það fyrsta sem hann gerir þegar hann kemur heim úr vinnunni er að fara út að labba með hundinn sinn hann Megas sem var að verða 14 ára.
Þegar hann var spurður út í furðulegustu afsökunina sem hann hefði heyrt þá datt honum engin sérstök í huga nema þessar klassísku „amma mín er veik eða hundurinn dó”.
Hann fær mjög góð laun en vill þó ekki nefna upphæð en það er hægt að sjá launin hans á netinu.