- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Tveir kennarar og þrír nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla fóru til Serres í Grikklandi í síðustu viku í tengslum við Erasmus+ verkefnið We Shape the Future. Í ferðinni fengu þátttakendur frá Íslandi, Grikklandi, Tyrklandi og Ítalíu fræðslu um gagnaukinn veruleika og með hvaða hætti er hægt að nýta tæknina í námi og kennslu. Hópurinn ferðaðist einnig um landið og skoðaði meðal annars Alistrati-hellirinn og borgina Þessalóniku. Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla fóru þau Andri Ingvason raungreinakennari, Bjarki Þór Jónsson tölvukennari ásamt nemendunum Ester Sól, Söru Jóhönnu og Oliwiu.
Verkefnið We Shape the Future gengur út á að kanna möguleika sýndarveruleika (VR), gagnaukins veruleika (AR) og gervigreindar í námi og kennslu með áherslu á STEM greinar. Hópurinn hefur ferðast til Ítalíu, Íslands og nú Grikklands. Næsta ferð verður til Tyrklands í lok apríl.