- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
Innritun nýnema og eldri nemenda í Fjölbrautaskólann við Ármúla er nú lokið.
Fimmtudaginn 26. júní fara starfsmenn Fjölbrautaskólans við Ármúla í sumarleyfi. Þeir mæta svo aftur til starfa miðvikudaginn 6. ágúst.
Allir nemendur skólans hafa núna fengið greiðsluseðil í heimabanka. Hjá nemendum yngri en 18 ára birtist greiðsluseðillinn hjá elsta forráðamanni. Ef greiðsluseðillinn er ekki greiddur skoðast það sem höfnun á skólavist.
Um 900 nemendur eru að jafnaði í dagskóla við Fjölbrautaskólann við Ármúla og u.þ.b. 1400 nemendur í fjarnámi. Mjög fjölbreyttar námsbrautir er að finna í skólanum; bóknám, listnám og heilbrigðistengt nám. Um 80 kennarar og 30 aðrir starfsmenn vinna að því daglega að aðstoða nemendur í námi sínu og stoðþjónusta er mjög mikil. Félagslífið í skólanum er gott og margt að gerast í hverri viku.
Foreldrar/forráðamenn nýnema sem koma úr 10. bekk verða boðaðir í viðtal með börnum sínum við umsjónarkennara dagana 11. - 14. ágúst. Boðun í viðtalið fer fram nokkrum dögum áður með tölvupósti og/eða símtali.
Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU (www.inna.is) fimmtudaginn 14. ágúst.
Skráning í fjarnám á haustönn hefst mánudaginn 18. ágúst.
Nýnemar verða boðnir velkomnir í skólann á nýnemadegi sem er mánudaginn 18. ágúst kl. 10:00 - 14:00
Fundur með eldri nýnemum verður í fyrirlestrasal mánudaginn 18. ágúst kl. 15:00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 19. ágúst.
Foreldrafundur verður haldinn mánudaginn 25. ágúst kl. 17:00.
Kennsla í fjarnámi á haustönn hefst 2. september.
Allar upplýsingar um bókalista og námið má finna á heimasíðu skólans, www.fa.is. Hér er svo hlekkur á ýmsar upplýsingar um annarbyrjun.
Nýnemadagur verður í byrjun september. Nánari upplýsingar verðar sendar þegar nær dregur.
Við hlökkum til að fá nemendur í skólann í haust og vonum að þeir eigi eftir að eiga góðar og árangursríkar stundir hjá okkur.
Með sumarkveðju,
Magnús Ingvason
Skólameistari FÁ