Tölvuleikjaprófanir hjá Bunkhouse Games

Vel var tekið á móti nemendum FÁ þegar þau heimsóttu leikjafyrirtækið Bunkhouse Games í síðustu viku. Þar fengu þau kynningu á starfsemi fyrirtækisins og nýjum óútgefnum tölvuleik sem hefur verið í þróun um nokkurt skeið. Nemendur voru áhugasamir og spurðu meðal annars út í þróunarferli leiksins, sem ber heitið Flock Off!

Á komandi vikum fá nemendur í áfanganum leikjahönnun (TÖHÖ2LH05) að taka þátt í leikjaprófunum á Flock Off! Prófanir eru mikilvægar í þróunarferli tölvuleikja og getur ferlið einnig reynst nemendum sem góð reynsla þar sem þeir fá að prófa leikinn og ígrunda leikjaupplifun og leikjahönnun í kjölfarið.