Bergdís kom heim með bronsið

Bergdís, nemandi við Fjölbrautaskólann við Ármúla, sneri heim frá Þýskalandi um helgina með bronsverðlaun í farteskinu! Hún tók þátt í dansmóti Special Olympics ásamt glæsilegum hópi frá Dans án hindrana á vegum Danslistaskóla JSB og stóð hópurinn sig frábærlega. Danshópurinn sem æfir jazzballett hafa æft saman undanfarin þrjú ár og lagt mikinn metnað og vinnu í undirbúninginn fyrir keppnina. Sá undirbúningur skilaði sér svo sannarlega með glæsilegum árangri! Við í FÁ erum afar stolt af Bergdísi og óskum henni og öllum danshópnum innilega til hamingju með bronsið! 👏🥉

Innritun í dagskóla á vorönn 2027

Innritun vegna náms á vorönn 2027 er hafin og stendur yfir til 30. nóvember. Á heimasíðu skólans má finna allar upplýsingar um námið s.s. áfanga og brautir: https://www.fa.is/is/skolinn/kynning-a-fa Innritun fer fram á www.innritun.is.